lgn.is - 08.08.2011.-Birting í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá.
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

08.08.2011.-Birting í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá.
08.08.2011 - 08.08.2011.-Birting í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá.

Nefndin vekur athygli á að óska þarf eftir birtingu í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá að minnsta kosti einum mánuði fyrir áætlaða birtingu.

Óska skal eftir birtingu upplýsinga um lyf í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá með því að fylla út sérstakt eyðublað sem síðan skal senda með tölvupósti til Lyfjastofnunar ([email protected]) og lyfjagreiðslunefndar ([email protected]).

Umsókn um birtingu þarf að berast Lyfjastofnun og lyfjagreiðslunefnd að minnsta kosti einum mánuði fyrir áætlaða birtingu í lyfjaskrám. Berist umsókn innan mánaðar frá áætlaðri birtingu má gera ráð fyrir að birtingu seinki um einn mánuð. Þetta er nauðsynlegt m.a. til þess að nefndin geti birt á heimasíðu sinni lista yfir ný lyf til birtingar í verðskrá næsta mánaðar þann 11. líðandi mánaðar.Sjá nánari leiðbeiningar dags. 14. júlí 2009, á heimasíðu nefndarinnar undir leiðbeiningar/vinnureglur.