Breytingar munu verða á lyfjaverðskrá frá og með 1. október nk. Í lyfjaverðskrá munu þá birtast skilgreiningar á ávana- og fíkniflokkum og einnig takmarnir á magni sem heimilt er að ávísa og afhenda í hverri lyfjaávísun. Ástæða breytinganna er að þann 1. október tekur gildi ný reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja. nr. 740/2020.
Í reglugerðinni er tiltekið í 3. mgr. 6 gr. :
„Um lyfjaávísanir annarra ávana- og fíknilyfja gildir að mest má afgreiða hverju sinni það hámarksmagn sem Lyfjastofnun ákveður í samræmi við 4. gr. og 10. gr. reglugerðar nr. 233/2001 með síðari breytingum um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Upplýsingar um leyfilegt hámarksmagn skulu birtar í sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá.”
Þetta leiðir til þess að breyta þarf uppbyggingu lyfjaverðskrár sem lyfjagreiðslunefnd gefur út.
A. Breytingar á dálkum:
- Dálkaheiti „Eftirritunarskylt“ fellur á brott.
- Aftast í skjalið bætast við fjórir dálkar með eftirfarandi heiti:
-
„Ávana- og fíkniflokkur“
-
„Ávana- og fíknilyf, magntakmörkun“
-
„Ávana- og fíknilyf, eining“
-
„Hjúkr-/ljósm ávísar“
B. Breytingar á kóðum:
- Í nýju dálkunum eru kóðar og einingar skilgreindir skv. eftirfarandi:
Fyrir dálkinn “Ávana- og fíkniflokkur” gilda eftirfarandi kóðar:
0
|
Ekki ávana- og fíknilyf
|
1
|
Eftirritunarskylt ávana- og fíknilyf
|
2
|
Ávana- og fíknilyf sem ekki er eftirritunarskylt
|
3
|
Magnháð eftirritunarskylda / Sjá sérlyfjaskrá
|
C. Skilgreiningar á magntakmörkun
Fyrir dálkana “Ávana og fíknilyf-magntakmörkun” og “Ávana og fíknilyf-eining” gildir:
-
Ef engin takmörkun á ávísuðu magni er reitur auður.
-
Ef takmörkun, þá er magntakmörkun eða dagatakmörkun þeirra skammta sem að hámarki er heimilt að ávísa, skilgreind samkvæmt flokkun og ákvörðun Lyfjastofnunar.
Upplýsingar um leyfilegt hámarksmagn, sjá: https://www.serlyfjaskra.is/
Einnig hefur verið settur inn nýr dálkur „Hjúkr.fr./ljósmæður“ vegna fyrirhugaðra breytinga á lyfjaverðskrá er varðar ávísanarétt hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á getnaðarvarnarlyf. Þær breytingar koma hins vegar ekki til framkvæmda fyrr en um áramót og munu verða tilkynntar þegar nær dregur. Fram að því mun kóði í dálknum vera „0“.
Landlæknir hefur kynnt þeim aðilum sem lesa inn lyfjaverðskrá að til standi að breyta lyfjaverðskrá sbr. ofangreint.
|