Lyfjagreiðslunefnd hefur tekið ákvörðun um hækkun á smásöluálagningu lyfja.
Frá 1. júlí 2020 verður verðlagning lyfseðilsskyldra lyfja og S-merktra lyfja sem hér segir, en ofan á heildsöluverð og álagningu bætist virðisaukaskattur (VSK):
Hámarksheildsöluverð : Smásöluálagning:
0 – 19.999 kr. 11,0% + 1.208 kr.
20.000 – 99.999 kr. 2,0% + 2.640 kr.
> 100.000 kr. 0,3% + 5.251 kr.
Um er að ræða hækkun krónutöluálagningar um 2,5 %. Krónutöluálagning álagningarþrepanna þriggja hækkar sem hér segir: Um 29 kr. í fyrsta þrepi, eða úr 1.179 kr. í 1.208 kr., í öðru þrepi hækkar hún um 64 kr. og því úr 2.576 kr. í 2.640 kr. og í þriðja þrepi hækkar hún um 128 kr. eða úr 5.123 kr. í 5.251 kr. Afmörkun álagningarþrepa og prósentuálagning helst óbreytt. |