Lyfjagreiðslunefnd hefur ákveðið að verða við ósk um að birta í hverjum mánuði, eins fljótt og mögulegt er, hvaða magasýrulyf og blóðfitulækkandi lyf verða með greiðsluþátttöku í næstu lyfjaverðskrá.
Í eftirfarandi excel skjölum sést hvaða magasýrulyf og blóðfitulækkandi lyf verða E-merkt í lyfjaverðskrá í apríl.
Til nánari skýringar á hvernig vikmörk eru fundinn. Þegar reiknað er 20% vik frá ódýrasta einingaverði þá verður miðað við heilar krónur og alltaf hækkað upp. Þetta er gert á þeirri forsendu að verð í lyfjaverðskrá er í heilum krónum.
Dæmi: Reiknað töfluverð er 65,1, það hækkað í 66 krónur, 20% vikmörk eru 78,12 sem er hækkað í 79 krónur. Öll magasýrulyf með töfluverð 66 krónur til og með 79,0 krónur fá E-merkingu í lyfjaverðskrá.
Leiðréttur listi yfir Magasýrulyf
Blóðfitulækkandi lyf |