Lyfjagreiðslunefnd hefur samþykkt leyfisskyldu fyrir Kisqali (ribociclip) við eftirfarandi ábendingu:
Kisqali er ætlað til meðferðar hjá konum með hormónaviðtaka-jákvætt (HR), manna húðþekjuvaxtarþáttaviðtaka 2-neikvætt (HER2) staðbundið, langt gengið brjóstakrabbamein eða brjóstakrabbamein með meinvörpum ásamt aromatasahemli eða fulvestranti sem upphafsmeðferð með lyfi með verkun á innkirtla, eða hjá konum sem hafa áður fengið innkirtlameðferð. Hjá konum fyrir tíðahvörf eða meðan á tíðahvörfum stendur skal nota LHRH-örva (gulbúsvakalosandi hormón) samhliða innkirtlameðferðinni.
Lyfin Kisqali (ribociclib) og Ibrance (palbociclib) eru lögð að jöfnu og það lyf sem hefur lægri meðferðarkostnað er að öllu jöfnu fyrsta meðferðarval
Klínískar leiðbeiningar fyrir Kisqali (ribociclip) KL
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á excel formi. Listi excel.
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á PDF formi. Listi PDF. |