Lyfjagreiðslunefnd hefur orðið við ósk Lyfjastofnunar um að dreifa H-merkingu lyfja með lyfjaverðskránni.
Bætt verður við einum dálki aftast þar sem fram kemur H-merking viðkomandi pakkningar.
Í lyfjaverðskrá 1. febrúar verða H-merkt þau lyf sem Lyfjastofnun hefur metið að eiga að vera H-merkt.
Sjá nánari upplýsingar á vef Lyfjastofnunar
https://www.lyfjastofnun.is/leyfisveitingar_lyfja/adrar_upplysingar/afgreidslumerkingar-lyfja
Einnig sést H-merking lyfs í Sérlyfjaskrá. https://www.serlyfjaskra.is/
Hér er hægt að ná í prufuskrá sem byggir á lyfjaverðskrá 1. janúar.
Prufuskrá H-merking.
Virðingarfyllst, starfsfólk lyfjagreiðslunefndar. |