Vegna ábendinga um ósamræmi við röðun lyfja í viðmiðunarverðflokka innan augndropa og innöndunarlyfja, ákvað lyfjagreiðslunefnd á 274. fundi nefndarinnar þann 22. mars s.l. að íhuga að breyta verklagsreglu um röðun lyfja í viðmiðunarverðflokka. Lyfjagreiðslunefnd íhugar að bæta við eftirfarandi setningu í verklagsregluna:
Pakkningar fyrir önnur lyfjaform, s.s. húðkrem, augndropa, nefúðalyf og innöndunarlyf, raðast eingöngu saman í viðmiðunarverðflokk með sambærilegum pakkningastærðum.
Sjá nánar drög að verklagsreglu hér.
Lyfjagreiðslunefnd áformar að breyting á verklagsreglu taki gildi 1. ágúst n.k.
Breyting á verklagsreglu við röðun lyfja í viðmiðunarverðflokka hefur í för með sér breytingu á röðun eftirfarandi lyfja í viðmiðunarverðflokka:
Sjá nánar í excel skjali hér.
Aðilum er gefinn frestur til að senda inn athugasemdir í síðasta lagi til 2. maí n.k. |