Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hækkar 1. maí 2017
Á 258. fundi lyfjagreiðslunefndar þann 10. apríl s.l. var ákveðið að samþykkja hækkun á smásöluálagningu lyfja.
Ný smásöluálagning lyfja tekur gildi 1. maí 2017 og verður eftirfarandi:
Hámarksheildsöluverð: Smásöluálagning:
0 – 19.999 kr. 11,0% + 1.074 kr.
20.000 – 99.999 kr. 2,0% + 2.347 kr.
> 100.000 kr. 0,3% + 4.669 kr.
Um er að ræða 122 kr. hækkun á krónutöluálagningu í smásölu í hverju þrepi. |