Á 202. fundi lyfjagreiðslunefndar þann 16. desember var ákveðin 3,9% hækkun á fasta krónutölu smásöluálagningar og tekur hún gildi 1. janúar 2014.
Krónutöluálagning fer við þetta úr 835 kr. í 868 kr. í lægra þrepi og úr 2.170 kr. í 2.255 kr. í hærra þrepi. Prósentuálagning er óbreytt.
Hérlendis eru tvö þrep í smásöluálagningu lyfseðilskyldra mannalyfja.
Lægra þrepið eru lyf með heildsöluverð 1-11.999 krónur og hærra þrepið eru lyf yfir 12.000 krónum:
Eftir 1.1.2014
|
Prósentu álagning
|
Föst krónutala
|
1-11.999 kr.
|
9%
|
868 kr.
|
12.000 kr. >
|
0%
|
2.255 kr.
|
Við ákvörðun á hækkun á smásöluálagningu lyfja voru hafðar til hliðsjónar verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2014 ásamt verðsamanburði á smásöluverði lyfja á Norðurlöndunum.
Breytingin hefur þau áhrif að gera verður samsvarandi breytingu á 7. gr. reglugerðar nr. 313/2013 er varðar skilyrta greiðsluþátttöku ákveðinna lyfja, með gildistöku 1. janúar 2014.
Verð á einingu, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 313/2013 um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði, verður breytt í lyfjaverðskrá fyrir janúar á þann hátt að a.m.k. sömu lyf verða með greiðsluþátttöku og í verðskrá fyrir desember. |