Breyting á smásöluálagningu lyfseðilskyldra mannalyfja.
Á 168. fundi Lyfjagreiðslunefndar þann 22. mars s.l. var ákveðin 7,9% hækkun á fasta krónutölu smásöluálagningar og tekur hún gildi 1. apríl n.k.
Krónutöluálagning fer við þetta úr 723 kr. í 780 kr. í lægra þrepi og úr 1.880 kr. í 2.028 kr. í hærra þrepi.
Hérlendis eru tvö þrep í smásöluálagningu lyfseðilskyldra mannalyfja.
Lægra þrepið eru lyf með heildsöluverð 1-11.999 krónur og hærra þrepið eru lyf yfir 12.000 krónum.
Hækkun á lægra þrep er 57 kr. og á hærra þrep 148 kr. Prósentuálagning er óbreytt.
Eftir 1.4.2012 Prósentu álagning Föst krónutala 1-11.999 kr. 9% 780 kr. 12.000 kr. 0% 2.028 kr.
Við ákvörðun á hækkun á smásöluálagningu lyfja voru hafðar að til hliðsjónar þær hækkanir sem orðið hafa á annarri heilbrigðisþjónustu og í öðrum rekstri í heilbrigðiskerfinu vegna verðlags- og gengisbreytinga.
Áætlað er að 7,9% hækkun á smásöluálagningu skili apótekunum um 200 millj. kr. í viðbótartekjum á ársgrundvelli.
Við mat á skiptingu aukins kostnaðar á milli Sjúkratrygginga og sjúklinga bætist við þá upphæð vsk. og gert er ráð fyrir að 106 m.kr. falli á sjúklinga og 145 m.kr. á Sjúkratryggingar Íslands. |