 |
|
|
|
06.05.2010 - Ný reglugerð um greiðsluþátttöku SÍ við kaup á lyfjum
|
06.05.2010 - 06.05.2010 - Ný reglugerð um greiðsluþátttöku SÍ við kaup á lyfjum |
Lyfjagreiðslunefnd vill vekja athygli umboðsmanna á nýrri reglugerð um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga við kaup á lyfjum sem tekur gildi 1. júní n.k. Helsta breytingin er að greiðsluþátttaka í lyfjum í ATC-flokkunum N06AB og N06AX verður skilyrt við hagkvæmustu pakkningar metnar út frá verði á einingu í pakkningu og þær pakkningar B-merktar sem víkja ekki meir en 180% frá lægsta einingaverði.
Umboðsmönnum er bent á að tímamörk til að breyta umboðsmannaverðum er til miðnættis 10. maí n.k.
|
|
|
|
|