 |
|
|
|
Heildarverðendurskoðun lyfja 2009
|
28.05.2009 - Heildarverðendurskoðun lyfja 2009 |
Þann 1. júní n.k. kemur til framkvæmda fyrsti hluti af þremur í heildarverðendurskoðun Lyfjagreiðslunefndar 2009. Áætlað er að hlutar tvö og þrjú komi til framkvæmda 1. ágúst og 1. september n.k.
Til að uppfylla 14. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hyggst Lyfjagreiðslunefnd birta á heimasíðu sinni lista yfir þær lyfjapakkningar sem koma til lækkunar í tveimur seinni hlutum heildarverðendurskoðunarinnar fyrir 10. hvers mánaðar áður en verðskráin tekur gildi.
Þetta verður með þeim hætti að upplýsingar um lyfjapakkningar sem lækka í verði þann 1. ágúst verða birtar fyrir 10. júlí og upplýsingar um lyfjapakkningar sem lækka í verði þann 1. september verða birtar fyrir 10. ágúst.
Hagsmunaaðilar geta þá komið að athugasemdum telji þeir það nauðsynlegt í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. |
|
|
|
|