lgn.is - 04.06.20 Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hækkar 1. júlí 2020
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

04.06.20 Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hækkar 1. júlí 2020
04.06.2020 - 04.06.20 Smásöluálagning lyfseðilsskyldra lyfja hækkar 1. júlí 2020

Lyfjagreiðslunefnd hefur tekið ákvörðun um hækkun á smásöluálagningu lyfja.

Frá 1. júlí 2020 verður verðlagning lyfseðilsskyldra lyfja og S-merktra lyfja sem hér segir, en ofan á heildsöluverð og álagningu bætist virðisaukaskattur (VSK):

 

             Hámarksheildsöluverð            :           Smásöluálagning:

                            0 – 19.999 kr.           11,0%   +      1.208 kr.

                    20.000 – 99.999 kr.            2,0%   +    2.640 kr.

                            > 100.000 kr.            0,3%   +     5.251 kr.

 

Um er að ræða hækkun krónutöluálagningar um 2,5 %. Krónutöluálagning álagningarþrepanna þriggja hækkar sem hér segir: Um 29 kr. í fyrsta þrepi, eða úr 1.179 kr. í 1.208 kr., í öðru þrepi hækkar hún um 64 kr. og því úr 2.576 kr. í 2.640 kr. og í þriðja þrepi hækkar hún um 128 kr. eða úr 5.123 kr. í 5.251 kr. Afmörkun álagningarþrepa og prósentuálagning helst óbreytt.