 |
|
|
|
20.04.2020 Tecentrig (azetolizumab), leyfisskylda við nýrri ábendingu
|
20.04.2020 - 20.04.2020 Tecentrig (azetolizumab), leyfisskylda við nýrri ábendingu |
Lyfjagreiðslunefnd hefur samþykkt leyfisskyldu fyrir Tecentrig (azetolizumab) við eftirfarandi ábendingu:
Tecentriq ásamt nab-paclitaxeli (paclitaxel á formi albúmínbundinna nanóagna) er ætlað til meðferðar hjá fullorðnum sjúklingum með óskurðtækt þríneikvætt brjóstakrabbamein, staðbundið og langt gengið eða með meinvörpum, þar sem æxlið tjáir PD-L1 í ≥1% frumna og sjúklingurinn hefur ekki áður fengið meðferð með krabbameinslyfjum við sjúkdómi með meinvörpum.
Klínískar leiðbeiningar fyrir Tecentrig (azetolizumab) KL
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á excel formi. Listi excel.
Listi yfir öll leyfisskyld lyf á PDF formi. Listi PDF. |
|
|
|
|