lgn.is - 24.03.2020 Plaquenil- Ráðstafanir til að koma í veg fyrir skort
Hafðu samband

LYFJASTOFNUN

Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík

Sími 520 2100

Netfang: [email protected]


 

 

24.03.2020 Plaquenil- Ráðstafanir til að koma í veg fyrir skort
24.03.2020 - 24.03.2020 Plaquenil- Ráðstafanir til að koma í veg fyrir skort

Til að tryggja sem best öryggi sjúklinga og koma í veg fyrir skort á lyfinu Plaquenil hafa Lyfjastofnun, Embætti landlæknis, Sjúkratryggingar Íslands og lyfjagreiðslunefnd ákveðið að grípa til eftirfarandi aðgerða:

  • Greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í Plaquenil hefur verið breytt tímabundið frá og með 24. mars 2020. Lyfið er nú án almennrar greiðsluþátttöku en Sjúkratryggingar Íslands munu í dag gefa út lyfjaskírteini fyrir þá sem eru í langtímameðferð með lyfinu. Lyfjaskírteinin munu gilda til 1. október 2020 og verða sýnilega í „Réttindagátt – Mínar síður“ á heimasíðu Sjúkratrygginga www.sjukra.is.
  • Lyfjaskírteini fyrir sjúklinga sem eru ekki nú þegar í langtíma meðferð með lyfinu verða gefin út að beiðni læknis og að uppfylltum ábendingum lyfsins. (sjá vinnureglu á heimsíðu SÍ)  
  • Umsókn um lyfjaskírteini skal gerð af sérfræðingum í gigtarlækningum, húðlækningum eða ónæmislækningum. Einnig geta sérfræðingar í smitsjúkdómum sótt um lyfjaskírteini og þá eingöngu við malaríu.
  • Aðeins verður heimilt að afgreiða og afhenda lyfið í apótekum gegn því að fyrir liggi gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands.
  • Eingöngu er heimilt að afgreiða lyfjaávísanir á Plaquenil útgefnar frá og með deginum í dag (24. mars 2020).
  • Aðeins er heimilt að afhenda sem samsvarar 30 daga skammti hvers sjúklings skv. lyfjaávísun læknis. Dæmi: Ef fyrirmæli læknis um notkun er tvær töflur á sólarhring þá er aðeins heimilt að afhenda 60 töflur. Lyfjabúðum er heimilt að rjúfa pakkningar til að uppfylla þetta skilyrði.
  • Haft verður samband við þá lækna sem sjá um meðferð flestra sem nota Plaquenil og þeir beðnir um að hafa samband við skjólstæðinga sína. Ef einhver í langtíma meðferð með lyfinu hefur ekki heyrt frá lækni sínum fyrir næstu helgi er rétt að hafa samband við lækninn.
  • Læknum er bent á að skoða lyfjasögu hvers og eins áður en ávísað er og ávísa lyfinu ekki að nýju fyrr en stutt er í að birgðir hvers og eins klárist. Mikilvægt er að sem minnst liggi í birgðum heima hjá hverjum og einum.
  • Hafi einhver sem er í langtíma meðferð með Plaquenil ekki fengið útgefið lyfjaskírteini fyrir 28. mars nk. er viðkomandi bent á að senda ábendingu þar að lútandi til [email protected] Vinsamlega skoðið Réttindagáttina fyrst.

Framangreindar aðgerðir sem lúta að takmörkunum á afhendingu lyfsins, bæði er varðar lyfjaskírteini og það magn sem afhenda má hverju sinni, byggja á III. bráðabirgðaákvæði reglugerðar nr. 1266/2017, sbr. reglugerð nr. 244/2020. Með frétt þessari telst uppfyllt skilyrði ákvæðisins um að tilkynna lyfjabúðum um takmarkanir samkvæmt ákvæðinu.

Fyrirkomulagið sem framangreindar aðgerðir og takmarkanir koma á gilda til 1. júní 2020 en lyfjaskírteini gilda þó til 1. október 2020. Breytingar kunna að vera gerðar á fyrirkomulaginu ef þörf krefur, t.d. að stytta það, lengja og/eða breyta. Sérstaklega verður tilkynnt um slíkar breytingar ef til þeirra kemur.

Lyfjastofnun minnir á bréf heilbrigðisráðuneytisins frá 23.2.2020 til lækna og lyfjafræðinga um að leggjast á árarnir með heilbrigðisyfirvöldum svo tryggt sé að sjúklingar sem lífsnauðsynlega þurfa á lyfjum að halda hafi áfram öruggt aðgengi að þeim og komið sé í veg fyrir óþarfa lyfjaskort.