Lyfjagreiðslunefnd hefur orðið við óskum Lyfjastofnunar um að gera breytingar á tölvukerfi nefndarinnar svo hægt verði að gefa undanþágulyfjaverðskrá út oftar en nú er gert og láta útbúa þann möguleika að GTIN númer geti verið fleiri en eitt á hverju norrænu vörunúmeri.
Örari útgáfa undanþágulyfjaverðskrár er fyrirhuguð um miðjan janúar 2020.
Í stuttu máli.
- Undanþágulyfjaverðskrá verður gefin út oftar.
- GTIN skrá verður aðskilin frá lyfjaverðskrá og verður „lifandi skrá“ í rauntíma og aðgengileg í gegnum vefþjónustu.Umboðsaðilar / heildsalar fá aðgang til að skrá sín GTIN númer í kerfið og sjá alfarið um GTIN gögnin í kerfinu. Vinsamlegast hafa samband við nefndina með tölvupósti á netfangið [email protected] til að óska eftir aðgangi.
- GTIN dálkur í verðskrá felldur brott.
- Vefþjónustur verða til samskipta milli tölvukerfisa lyfjagreiðslunefndar og tölvukerfa notenda
Fyrir notendur á lyfjaverðskrár/undanþágulyfjaverðskrá þá eru sýnilegu breytingarnar að á heimasíðu nefndarinnar koma fleiri útgáfur undanþágulyfjaverðskrár í hverjum mánuði sem hægt er að sækja hér. https://lgn.is/?pageid=10
GTIN dálkur í Lyfjaverðskrá/undanþágulyfjaverðskrá felldur brott og upplýsingar í excel skjölum hliðrast um einn dálk. ( GTIN númer eru nú í dálk AU í excel skjali, upplýsingarnar eru felldar brott og upplýsingar í dálkum AV og AW hliðrast til vinstri. AV dálkur verður dálkur AU og AW dálkur verður dálkur AV).
Sjá excel lyfjaverðskrá án GTIN númera
Það er boðið upp á nokkrar Vefþjónustur fyrir tölvuaðila sem uppfæra tölvukerfi, s.s. Lyfjaávísanakerfi, apótekakerfi.
- Er GTIN númer til
- Sækja eitt GTIN númer
- Sækja öll GTIN númer
- Sækja öll GTIN númer sem streng
- Er ný útgáfa af verðskrá
- Fá Lyfjaverðskrá
Opið er fyrir prófanir á Vefþjónustum í prófunarumhverfi. Opnað verður fyrir prófanir í raunumhverfi í annarri viku janúar 2020. Sjá nánar um Vefþjónustur í PDF skjali. Ef eitthvað kemur upp á tæknilega við prófanir, vinsamlegast senda tölvupóst á albert[email protected] með afriti á [email protected]
PDF skjal með tæknilegum upplýsingum um vefþjónustur. (uppfært 17.01.2020) |