 |
|
|
|
23.11.2018 Nýr starfsmaður til lyfjagreiðslunefndar
|
23.11.2018 - 23.11.2018 Nýr starfsmaður til lyfjagreiðslunefndar |
Eva Ágústsdóttir hefur tekið til starfa sem staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar.
Eva lauk kandídatspróf í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 1992, diplómaprófi í viðskipta- og rekstrarnámi við Endurmenntun HÍ 1998, viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá HÍ 2014 og meistaranámi í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá HÍ árið 2017.
Eva hefur unnið síðastliðin tvö ár hjá Lyf og Heilsu, vann í Sjúkrahúsapóteki Landspítala frá 2006-2015 og þar áður hjá Lyfjastofnun.
Lyfjagreiðslunefnd býður Evu velkomna til starfa.
|
|
|
|
|