 |
|
|
|
18.09.2018 Lyfjafræðingur – staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar
|
18.09.2018 - 18.09.2018 Lyfjafræðingur – staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar |
Lyfjagreiðslunefnd óskar eftir að ráða lyfjafræðing til starfa á skrifstofu nefndarinnar. Lyfjagreiðslunefnd er skipuð af heilbrigðisráðherra, skv. 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994. Helstu verkefni nefndarinnar er að ákveða að fenginni umsókn hámarksverð á lyfseðilsskyldum lyfjum og öllum dýralyfjum í heildsölu og smásölu og ákveða hvort sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu lyfja. Helstu verkefni: • Staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar • Undirbúningur umsókna og erinda fyrir fundi nefndarinnar • Afgreiðsla umsókna um verð og greiðsluþátttöku lyfja • Umsjón með útgáfu lyfjaverðskrár • Fagleg aðkoma og vinna við ýmis mál er tengjast lyfjamálum Hæfnikröfur: • Háskólapróf í lyfjafræði • Þekking á greiðsluþátttökureglum lyfja • Góð tölvukunnátta • Gott vald á íslensku, ensku og Norðurlandamáli • Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 1. október n.k. Nánari upplýsingar veitir Guðrún I. Gylfadóttir, formaður lyfjagreiðslunefndar í síma 553 9050 eða 868 3816. Umsóknir sendist á netfangið [email protected]. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
|
|
|
|
|