 |
|
|
|
13.6.2019 - Nýr formaður og framkvæmdarstjóri lyfjagreiðslunefndar
|
13.06.2019 - 13.6.2019 - Nýr formaður og framkvæmdarstjóri lyfjagreiðslunefndar |
|
Heilbrigðisráðherra hefur skipað Evu Ágústsdóttur, lyfjafræðing, nýjan formann lyfjagreiðslunefndar frá og með 1. júní 2019.
Eva lauk kandídatspróf í lyfjafræði frá Háskóla Íslands árið 1992, diplómaprófi í viðskipta- og rekstrarnámi við Endurmenntun HÍ 1998, viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá HÍ 2014 og meistaranámi í opinberri stjórnsýslu (MPA) frá HÍ árið 2017.
Eva hóf störf hjá lyfjagreiðslunefnd í nóvember 2018 sem staðgengill formanns lyfjagreiðslunefndar. Fram að því starfaði hún m.a. í Sjúkrahúsapóteki Landspítala frá 2006-2015 og þar áður hjá Lyfjastofnun.
Lyfjagreiðslunefnd býður Evu velkomna til starfa.
|
|
|
|
|
|