 |
|
|
|
21.05.2014 - Endurskoðun á greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum G04BD
|
21.05.2014 - 21.05.2014 - Endurskoðun á greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum G04BD |
Lyfjagreiðslunefnd hefur, skv. 43. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum, ákveðið að taka til endurskoðunar greiðsluþátttöku lyfja í ATC flokknum G04BD, sem eru lyf við tíðum þvaglátum og þvagleka.
Fyrirhugað er að endurskoðunin fari fram í júní 2015.
Við endurskoðunina verður allur ATC flokkurinn G04BD tekin til endurskoðunar og mun nefndin styðjast við söluáætlanir umboðsaðila og áætlanir um fjölda sjúklinga. Jafnframt verður tekið tillit til verðs á samanburðarlyfjum og verðs lyfjanna í samanburðarlöndunum. |
|
|
|
|