 |
|
|
|
22.01.2014 - Verðendurskoðun á ATC flokkunum C03EA01, G03BA og N06BA
|
22.01.2014 - 22.01.2014 - Verðendurskoðun á ATC flokkunum C03EA01, G03BA og N06BA |
Með vísan í 7. gr. reglugerðar nr. 353/2013 um lyfjagreiðslunefnd var ákveðið á 203. fundi nefndarinnar þann 13. janúar s.l. að framkvæma verðendurskoðun á hámarks heildsöluverði á öllum pakkningum í ATC flokkunum C03EA, G03BA og N06B.
Tilefni verðendurskoðunarinna er m.a. ábending frá Sjúkratryggingum Íslands um verðlækkanir í viðmiðunarlöndunum og með vísun í greingerðar með fjárlagafrumvarpi um nauðsyn á aðhaldi í lyfjakostnaði.
Endurskoðunin verður gerði í á öllum lyfjum í framgreindum ATC flokkum án tillits til veltu. Endurskoðunin mun miða við verð í verðskrám í janúar 2014 í viðmiðunarlöndunum og lyfjaverðskrárgengi janúar 2014.
Áætlað er að niðurstöður verðendurskoðunar munu birtast í verðskrá 1. mars 2014. |
|
|
|
|